Þetta helst

Tekist á um nýja og gamla eldunaraðferð rjúpu

Rík hefð er fyrir því bera fram rjúpur á aðfangadagskvöld. Uppskriftir af máltíðinni hafa gengið kynslóða á milli í langan tíma. Á undanförnum áratug hefur svokallaði nýji mátinn orðið sívinsælli eldunaraðferð. Reipitogið milli nýja og gamla tímans, um hvort betra sjóða rjúpur eða snöggsteikja þær, það er umræðan í þessum þætti. Við heyrum af deilum feðganna Torfa Hjálmarssonar og Freys Torfasonar um nákvæmlega það. Matreiðslumeistarinn Úlfar Finnbjörnsson segir okkur frá eldunaraðferðunum tveimur. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Frumflutt

20. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,