Þetta helst

Mál ónefnda fótboltamannsins, Gylfa Sigurðssonar

Tæpt ár er liðið frá því Gylfi Þór Sigurðsson, einn besti knattspyrnumaður íslenskrar fótboltasögu, var handtekinn á heimili sínu í Manchester, grunaður um kynferðisbrot. Á þessum 11 mánuðum hefur Gylfi ekki leikið fótbolta, hvorki með félagsliði sínu Everton íslenska landsliðinu. Hann sætir farbanni í Bretlandi, sem hefur ítrekað verið framlengt, og er sagður fara huldu höfði í einhvers konar skjólshúsi í London. Gylfi hefur ekki verið nafngreindur í fjölmiðlum ytra, lögreglan í Manchester gefur ekkert út nema stöku setningar um framlengingu farbanns og ætlað brot Gylfa gegn ótilgreindum ólögráða einstaklingi, er mjög svo á reiki.

Everton ætlar ekki framlengja samninginn við hann, fréttist fyrir nokkrum dögum. Í Þetta helst skoðum við það litla sem vitað er um mál ónefnda fótboltamannsins frá Íslandi.

Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.

Frumflutt

14. júní 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,