Þetta helst

Elskar Hobbitann og hatast út í hinsegin fólk

Giorgia Meloni verður öllum líkindum næsti forsætisráðherra Ítalíu, eftir flokkur hennar Fratelli d?Italia eða Bræðralag Ítalíu, vann stórsigur í þingkosningum á sunnudag. Hún verður þá fyrst kvenna til gegna þessu valdamesta embætti ítalska stjórnkerfisins. Það er ekki eina ástæða þess velgengni hennar í kosningum hefur vakið heimsathygli, Meloni og flokkur hennar eru langt til hægri á hinum pólitíska ás, og hefur hún jafnvel verið kölluð fasisti, enda hóf hún stjórnmálaferill sinn sem unglingur í nýfasískri hreyfingu. Þetta helst skoðaði ævi Meloni, stefnumál hennar og ummæli, og áhugamál en hún hefur haft mikinn áhuga á verkum J.R.R Tolkien og öðrum fantasíubókmenntum frá unga aldri.

Frumflutt

28. sept. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,