Þetta helst

Annar Hollywoodframleiðandi ákærður fyrir kynferðisbrot

Metoo bylgjunar halda áfram skella á heimsbyggðinni hver á fætur annarri, stórar og smáar. Í vikunni sem er líða voru nákvæmlega fimm ár liðin frá því bandaríska dagblaðið New York Times fletti ofan af ítrekuðum og grófum kynferðisbrotum Hollywoodstórstjörnuframleiðandans Harvey Weinstein, sem löngum þótti nánast ósnertanlegur risi í kvikmyndaheiminum. Það varð kveikjan fyrstu bylgju #metoo-byltingarinnar þar sem milljónir kvenna um víða veröld vöktu athygli á langvarandi kynferðisofbeldi og kynjamisrétti. Og nú, fimm árum og mörg hundruð málum síðar, hefur annar farsæll Hollywood-framleiðandi og handritshöfundur verið handtekinn fyrir misnota aðstöðu sína og brjóta á konum. Hann hefur getið sér gott orð í Kaliforniu síðustu áratugi fyrir skrif og framleiðslu á vinsælum sjónvarpsþáttum á borð við Scrubs og Californication - þættir sem slógu vel í gegn víða um heim fyrir um áratug síðan. Sunna Valgerðardóttir fjallar um Eric Weinberg í Þetta helst.

Frumflutt

7. okt. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,