Þetta helst

Mál ónefnda fótboltamannsins, Gylfa Sigurðssonar II

Það fer nálgast eitt og hálft ár síðan Gylfi Þór Sigurðsson, fyrrverandi leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Everton, lykilmaður í íslenska landsliðinu og raunar einn besti fótboltamaður sem Ísland hefur alið af sér, var handtekinn í Manchester í Bretlandi vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Gylfi var látinn laus gegn tryggingu en hefur verið í farbanni síðan, sem hefur verið framlengt nokkrum sinnum. Hann hefur dvalið í eins konar stofufangelsi bróðurpart þessa tíma, hann hefur ekki spilað knattspyrnu síðan hann var handtekinn og raunar lítið sem ekkert heyrst af hans máli. Hvorki ákæra niðurfelling. Málið er bara í rannsókn. Það er enn ekki búið nafngreina Gylfa í fjölmiðlum ytra. Fjölskylda hans er flutt heim til Íslands, pabbi hans hefur beðið íslensk stjórnvöld skipta sér af og sumir segja það verið brjóta mannréttindi Gylfa með því hafa hann í farbanni síðan í júlí í fyrra. María Rún Bjarnadóttir er lögfræðingur hjá ríkislögreglustjóra og sérfræðingur í kynferðisbrotamálum, meðal annars. Hún segir þetta vissulega langur tími, en eins og við þekkjum þá er málsmeðferðartími kynferðisbrotamála alla jafna allt of langur. Og þó það auðvitað íþyngjandi fyrir sakborninga, þá er það ekki síður óbærilegt fyrir brotaþolana. Og fimmtán mánuðir er alveg mikið, allt of mikið, en ekkert endilega óvenjulega mikið. Breskir dómstólar myndu heldur ekki samþykkja ítrekaða framlengingu á farbanni nema lögreglan gæti sýnt fram á það virk rannsókn í gangi. Sunna Valgerðardóttir fékk Maríu Rún í Þetta helst til spá í framhald máls fótboltamannsins ónefnda, Gylfa Þórs Sigurðssonar.

Frumflutt

1. nóv. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,