Þetta helst

Stærsta kjarnorkuver Evrópu miðpunktur stríðs

Alheimurinn óttast meiriháttar kjarnorkuslys kunni vera yfirvofandi í stærsta kjarnorkuveri Evrópu, kjarnorkuverinu í úkraínsku iðnaðarborginni Zaporizhzhia. Rússneskt herlið hefur haft verið á valdi sínu síðan í mars, en skæðir bardagar hafa staðið yfir allt umhverfis það vikum saman. Leiðtogar um allan heim hafa hvatt bæði Rússa og Úkraínumenn láta af bardögunum, en hver vísar þar á annan eins og gengur og gerist í stríði. En í dag dró til tíðinda þegar það var tilkynnt vel valið teymi frá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni er á leið til Zaporizhzhia, nokkuð sem Úkraínuforseti hefur krafist í langan tíma. Þetta helst skoðaði aðeins Zaporizhzhia kjarnorkuverið og leit til Chernobyl í leiðinni.

Frumflutt

29. ágúst 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,