Þetta helst

Ofurmóðir sannleikans

Áhrifavaldar þessa heims eru alls konar. Misgagnlegir og misskaðlegir. Svolítið eins og trúar- og lífsskoðunarhópar. í vikunni mætti bandarísk sex barna móðir fyrir dómstól og játaði á sig næstum ólýsanlega glæpi gegn börnum sínum, sem hún hafði dásamað klukkustundum saman á netinu nokkrum árum fyrr. Hún var með milljónir áskrifenda og milljarða áhorf. En það er fleira sem þessi kona og skaðlegir sértrúarsöfnuðir eiga sameiginlegt. Hún var eiginlega í tveimur og drottnaði yfir þeim þriðja, fjölskyldunni sinni. Sunna Valgerðardóttir fjallar um ofurmömmuna í Utah sem á yfir höfði sér nokkurra ára, eða áratuga, fangelsi.

Frumflutt

22. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,