Þetta helst

Claudia Sheinbaum, nýkjörinn forseti Mexíkó, er boðberi betri tíma

Claudia Sheinbaum varð í byrjun júní fyrsta konan sem er kjörin forseti Mexíkó. Aldrei áður hefur forseti þar í landi náð kjöri með jafnmörgum atkvæðum. Yfir 35 milljónir atkvæða með nafni Sheinbaum, komu upp úr kjörkössunum og hún hlaut yfir sextíu prósent atkvæða. Næsti frambjóðandi, stjórnmálakonan Xochitl Galvez, var ekki einu sinni hálfdrættingur á við Sheinbaum, hlaut innan við 30 prósent atkvæða.

Sheinbaum er með doktorsgráðu og hefur sérhæft sig í loftslagsmálum. Hún er virt vísindakona, er af gyðingaættum og hóf feril sinn í stjórnmálum sem yfirmaður umhverfismála, eða nokkur konar umhverfisráðherra Mexíkóborgar, þar sem hún átti síðar eftir verða borgarstjóri. Hún er náinn samstarfsmaður fráfarandi forseta, Manuels Lopez Obradors, og hefur sagst ætla halda áfram á braut aukinnar velferðar og jöfnuðar í landinu. Og hún segist ætla vinna gegn ofbeldi gegn konum, sem er útbreitt í landinu, og fækka glæpum, meðal annars með því tryggja þeim sem brjóta af sér, verði refsað. Verkefnin eru því ærin.

Claudia Sheinbaum tekur við embætti forseta Mexíkó 1. október . Þá verður koma í ljós hvernig til tekst við berjast gegn spillingu, ofbeldi og glæpum, setja umhverfið á oddinn, minnka fátækt, halda úti sanngjörnu skattkerfi og bæta kjör mexíkósku þjóðarinnar. Forseti Mexíkó aðeins sitja eitt sex ára kjörtímabil og Sheinbaum hefur því tíma til ársins 2030 til koma sínum baráttumálum til leiðar.

Eyrún Magnúsdóttir fjallar um kjör Sheinbaum, stöðu hennar og verkefnin framundan í þættinum.

Til viðtals er Tania Zarak Quintana, aðstoðarframkvæmdastjóri þróunar hjá True North og stjórnandi hlaðvarpsins Cable a Tierra, þar sem fjallað er um málefni Mexíkó meðal annars, en hún er vongóð um nýr forseti tákn um jákvæðar breytingar í heimalandinu.

Þá er rætt við Gunnvöru Rósu Eyvindardóttur alþjóðastjórnmálafræðing og kennara en hún segir kjörið marka ákveðin tímamót og líklegt Sheinbaum verði fyrirmynd annarra kvenna í Mexíkó líkt og Vigdís Finnbogadóttir varð hér á landi þegar hún var kjörin forseti fyrst kvenna.

Marta Quintana de Zarak er ljósmyndari og býr í Mexíkó. Hún telur Sheinbaum færa fólkinu í Mexíkó von og segist telja henni muni takast draga úr spillingu í landinu.

Frumflutt

20. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,