Þetta helst

Lúxushótel og vafasamar stjörnur (e)

Töluverður fjöldi fólks kemur hingað á hverju ári til njóta þess sem landið okkar hefur upp á bjóða: skoða hvali og kindur, borða hvali og kindur, baða sig í heitu vatni, horfa á norðurljós og eldgos, taka selfie við Hallgrímskirkju, fara varlega í Reynisfjöru og valhoppa á milli mathalla. En inn á milli venjulegu ferðamannanna leynast auðkýfingar sem vilja eitthvað örlítið extra. Ísland er vinsæll áfangastaður ríka og misfræga fólksins í heiminum sem hefur vanist því aðeins það besta, dýrasta og flottasta þegar það er ferðast. En hvar sefur þetta fólk þegar það kemur til Íslands? Hvar eru velmegunargististaðirnir og hvað þarf til þessar miseftirsóttu fimm stjörnur? Hvað er í kortunum í lúxushótelbransanum? Sunna Valgerðardóttir skoðaði stjörnuhótel landsins í þætti dagsins, sem var upphaflega á dagskrá í janúar 2023.

Frumflutt

26. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,