Þetta helst

Hjólað allt árið

Sífellt fleira fólk velur hjóla allt árið. Anna Hulda Ólafsdóttir skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofunni er ein þeirra sem hjólar nær allra sinna ferða. Hún segir innviðauppbyggingu á borð við hjólastíga skipta máli en réttur búnaður og gott hjól skipti ekki síður máli. Þá mikilvægt vinnustaðir geri fólki það auðveldara fara til vinnu á hjóli, til dæmis með góðum hjólageymslum.

Fyrsti eiginlegi hjólastígurinn var lagður á smá spotta á Laugaveginum fyrir rétt tæpum tveimur áratugum. Síðan þá hafa sérgreindir hjólastígar teygt sig nokkra tugi kílómetra um höfuðborgarsvæðið og einnig um landsbyggðina. Pawel Bartoszek er formaður svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins og situr í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur. Hjá borginni er markmiðið tíu prósent allra ferða verði farnar á hjóli árið 2025. Pawel segir árið 2030 stefnt því fullburða net hjólastíga verði orðið veruleika í höfuðborginni.

Frumflutt

5. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,