Þetta helst

Engin samræming er í hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum

Engin lög eða reglur gilda um það hagsmunaskráning kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum birt opinberlega. Sveitarfélögum er því í sjálfsvald sett hvort þau krefja kjörna fulltrúa um slíka hagsmunaskráningu eða ekki.

Í þættinum var fyrir skömmu fjallað um það formaður bæjarráðs í sveitarfélaginu Ölfusi, Grétar Ingi Erlendsson, hefði vikið af fundi bæjarrstjórnar þar sem teknar voru ákvarðanir sem snertu fyrirtæki sem hann og konan hans eru stórir hluthafar í. Í ljós kom fulltrúar minnihlutans í sveitarstjórninni vissu ekki hann væri hluthafi í þessu fyrirtæki sem ætlar byggja 80 til 95 íbúðir í sveitarfélaginu.

Í kjölfarið á þessu máli sendi Þetta helst spurningar um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa til margra sveitarstjórna á suðvesturhorninu. Í ljósi kom sum sveitarfélög eru ekki með neinar reglur um hagsmunaskráningu á meðan önnur halda skrá yfir þessa hagsmuni en birta hana ekki opinberlega. Sum sveitarfélög, til dæmis Reykjavíkurborg og Hveragerði, halda þessa hagsmunaskrá og birta hana opinberlega.

Í þættinum í dag er þetta mál rætt við Björn Inga Óskarsson, lögfræðing í innviðaráðuneytinu, og Evu Marín Hlynsdóttur, sérfræðing í opinberri stjórnsýslu. Rósa Guðbjartsóttir, bæjarstjóri í Hafnarfjarðarbæ, segir einnig frá því af hverju sveitarfélagið birtir þessa hagsmunaskráningu.

Frumflutt

21. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,