Heimir Hallgrímsson í miðju stormsins
Í þætti dagsins eru sjónum beint að deilum um leiki Írlands og Ísraels. Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, stendur í miðju stormsins. Rætt er við Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamann,…
Verslunin Fjarðarkaup í Hafnarfirði er eins og hálfgert tímahylki, því þar er allt svolítið uppá gamla mátann. Starfsfólk í rauðum sloppum á gólfinu tilbúið til að aðstoða viðskiptavininn með hvað sem er. Fjarðarkaup hefur hvorki farið í útrás né í netverslun. Það er persónuleg þjónusta og gott vöruúrval sem þeir bræður, Sveinn og Gísli Sigurbergssynir, leggja áherslu á í sínum verslunarrekstri. Og það hefur gefið góða raun. Að minnsta kosti helst þeim vel á starfsfólki eins og við fáum að kynnast í þessum þætti. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.