Þetta helst

Börn hjóla, fullorðnir hjóla ...en ungt fólk hjólar síst

Þrátt fyrir framhaldsskólar séu almennt smekkfullir af hraustu ungu fólki yfir skólaárið þá eru litlar líkur á koma auga á framhaldsskólanema á hjóli. Aðeins um þrjú til fimm prósent framhaldsskólanema hjóla í skólann og hlutfallið er svipað krökkum í efstu bekkjum grunnskóla, unglingadeild, þrátt fyrir í fyrsta til sjöunda bekk hjólið allsráðandi farartæki.

Þórarinn Alvar Þórarinsson er íþróttafræðingur og sérfræðingur hjá ÍSÍ. Hann hefur skoðað tölfræði um hjólreiðar og rætt er um hjólreiðar framhaldsskólanema og ungs fólks í þættinum.

Grunnskólabörn gera mikið af því hjóla í skólann en eftir komið er í gagnfræðaskóla er eins og hjólið endi inni í hjólageymslum. Í framhaldsskóla og háskóla er ólíklegt hjólið drífi út úr geymslunni.

Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélög hafa það markmiði auka veg hjólreiða á næstu árum, meðal annars til minnka álag á vegakerfið. Borgin hefur það markmiði í hjólreiðaáætlun tíu prósent framhaldsskólanema til hjóla í skólann.

Framhaldsskólanemar eru stór hópur, um eða yfir 23 þúsund manns, og álíka fjöldi stundar háskólanám hér á landi. Báðir þessir hópar fara í töluverðum mæli á bíl eða far með bíl á leið til og frá skóla, þótt margir noti auðvitað strætó. Mögulegt væri taka upp hvatakerfi í framhaldsskólum sem yrði til þess framhaldsskólanemar fengju einingar fyrir hjóla í skólann.

Eyrún Magnúsdóttir fjalla um hjólreiðar sem samgöngumáta í þættinum

Frumflutt

11. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,