Þetta helst

Ríkisstyrkir til rafbílakaupa: Eitt fyrirtæki fékk rúmlega 100 milljónir af 510

Bifreiðaumboðið Brimborg fékk rúmlega 100 milljónir króna af þeim 510 sem íslenska ríkið veitti nýlega fyrirtækjum í ríkisstyrki til rafbílakaupa. Þá fær Brimborg líka stóran hluta af styrkjunum með óbeinum hætti þar sem stór hluti af fyrirtækjunum sem styrkina ætla kaupa rafbíla af þessu umboði.

Um er ræða ríkisstyrki vegna kaupa á rafmagns vörubílum í atvinnuskyni. Samtals eru veittir styrkir vegna kaupa á 87 bifreiðum. Tilgangurinn er ýta undir umhverfisvernd og orkuskipti með því stuðla aukinni notkun rafbíla í atvinnuskyni.

Rætt er við Björn Kristjánsson hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda um málið en hann er gagnrýninn á fyrirkomulag styrkjanna og telur of fyrirtæki hafa setið þeim. Einn af styrkþegunum, Björn Eydal Davíðsson, lýsir því sömuleiðis hvernig hann fékk rafbílastyrkinn. Egill Jóhannsson hjá Brimborg svarar því af hverju styrkirnir eru mikilvægir.

Frumflutt

30. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,