Þetta helst

Vandræði kvikmyndastjörnunnar Ezra Miller

Aðdáendur ofurhetjumynda hafa beðið árum saman eftir The Flash, kvikmynd um samnefnda kempu sem hlaupið getur á ofurhraða. Myndin var svo gott sem tilbúin árið 2018 en frumsýningu hefur verið ítrekað frestað. Meðal annars vegna þess leikarinn sem fer með aðalhlutverkið, Ezra Miller, hefur ítrekað komist í kast við lögin á síðustu misserum, og fjölmargar fréttir verið fluttar af furðulegu athæfi háns hingað og þangað um heiminn. Meðal annars á Íslandi. Þetta helst fjallar um feril Ezra Miller síðustu árin og framtíðarhorfur The Flash.

Frumflutt

17. okt. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,