Ástæður og áhrif verkfalls flugvirkja
Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags. Fundur í deilunni fyrir helgi reyndist árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Rætt er um stöðu…
Í blíðskaparveðrinu sem verið hefur á landinu síðustu daga taka margir fram grillin sín og fíra upp í þeim. Eitt af því sem margir grilla á góðviðrisdögum eru pylsur, ekki síst fyrir börnin.
Forstjóri Sláturfélags Suðurlands (SS), Steinþór Skúlason, segir að pylsusala fyrirtækisins virka tvöfaldist í góðu veðri eins og verið hefur í landinu síðustu daga.
En eru pylsur eins og hjá SS góður matur? Um þetta hafa næringarfræðingar og talsmenn íslensku pylsunnar slegist í gegnum árin.
Einn þeirra sem hefur gagnrýnt íslensku pylsuna er næringarfræðingurinn og einkaþjálfaranum Geir Gunnar Markússon.
Umsjón: Ingi F. Vilhjálmsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.