Þetta helst

Boris Johnson: Sagan, staðan og arfleifðin

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er búinn segja af sér sem leiðtogi breska Íhaldsflokksins. Hann hættir sem forsætisráðherra í haust, þó í þessu tilviki haust einhverju leiti teygjanlegt hugtak. Johnson hefur stýrt Bretlandi í þrjú ár og er líklega einn litríkasti og umdeildasti stjórnmálamaður sem Bretland hefur átt. Það er mögulega eitt af því fáa sem er óumdeilanlegt þegar kemur þessum undarlega og því er virðist spillta, pólitíkus. En hver var þessi ungi maður sem virðist hafa ætlað komast til valda alveg frá því hann var lítill? Þegar hann var spurður því sem ungur drengur hvað hann vildi verða þegar hann yrði stór, sagðist hann vilja verða konungur heimsins. Hver verður arfleið hans þegar kemur Bretlandi og bresku þjóðinni allri, sem sum segja hafi hlotið varanlegan skaða eftir hans ár sem forsætisráðherra? Þetta helst er með tvo fróða og góða viðmælendur í dag, fyrri fer yfir málið í ljósi sögunnar og seinni í ljósi stöðunnar.

Frumflutt

8. júlí 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,