Þetta helst

Stórfyrirtækið Kaupfélag Skagfirðinga og umsvif þess

Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðarákróki er orðið stórfyrirtæki á landsvísu sem fjárfestir í fyrirtækjum á mörgum ólíkum sviðum.

Flóra fjárfestinga kaupfélagsins nær allt frá útgerð og landbúnaði, til framleiðslu á ídýfum og majónessósum, og yfir í afþreyingariðnaðinn.

Sem dæmi um fyrirtæki sem kaupfélagið á nefna Hamborgarafabrikkuna, Metró, Vogabæ, E. Finnson, Mjólku, American Style, Aktu Taktu, Shake and Pizza, Black Box, Keiluhöllina, Fóðurblönduna, hoppugarðinn Skopp í Kópavogi og síðast en ekki síst þriðjungshlut í stórútgerðinni Vinnslustöðinni í Kópavogi.

Mjólkurkýr Kaupfélags Skagfirðinga er hins vegar útgerðin FISK Seafood. Þátturinn er annar af þremur þar sem fallað um er umsvif stórútgerða og eigenda þeirra í öðrum atvinnurekstri á Íslandi. Í fyrsta þættinum var fjallað um fyrirtækjaveldi Guðbjargar Matthíasdóttur í Eyjum og í þeim síðasta verður fjallað um Samherja.

Frumflutt

20. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,