Þetta helst

Aðstaða og viðskipti bræðranna í FH

Fyrirtæki fyrverandi formanns FH, Best hús, fékk tæpar 400 milljónir króna frá félaginu vegna byggingar knatthúss í Hafnarfirði. Hann heitir Jón Rúnar Halldórsson og var formaður FH frá 2005 til 2019. Bróðir Jóns, Viðar Halldórsson, er formaður FH og stýrði byggingaframkvæmdum og bókhaldinu þegar knatthúsið var byggt. Hann fékk greiddar tæpar 73 milljónir króna fyrir þetta.

Hafnarfjarðarbær íhugar kaupa knatthúsið og fékk Deloitte til vinna greiningu á viðskiptunum með knatthúsið. Þar koma þessar upplýsingar fram.

Fjallað er um þetta mál og fyrirtæki Jóns Rúnars og rætt við Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra í Hafnarfirði.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Frumflutt

19. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,