Síðdegisútvarpið

Ísland heldur Söngvakeppni,viðbrögð formanns FTT,hvítlauksrækt og djúptæknikjarni

Í tvígang hefur verið mótmælt fyrir utan Ríkisútvarpið hér í Efstaleiti vegna þátttöku Ísrael í Eurovision, annars vegar í desember og síðast í síðustu viku. Í bæði skiptin hefur Stefán Eiríksson útvarpsstjóri tekið á móti undirskriftarlista sem þúsundir hafa skrifað undir þar sem RÚV er hvatt til sniðganga keppnina, þar auki skoraði stjórn Félags tónskálda og textahöfunda á útvarpsstjóra í desember taka ekki þátt í Eurovision í ár. Staðfest er Ísrael verður með í keppninni í Malmö í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, sem birt var á vef Sænska sjónvarpsins á dögunum. En hver er staðan á málinu núna, verður Söngvakeppni í ár og mun Íslands taka þátt í Eurovision þrátt fyrir Ísrael með í keppninni. Rúnar Freyr Gíslason framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri koma til okkar á eftir.

Og í kjölfarið af því Rúnar Freyr Gíslason framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segja okkur af stöðu Söngvakeppninnar og þátttöku Íslands í Eurovision ætlum við viðbrögð Braga Valdimars Skúlasonar formanns Félags tónskálda og textahöfunda en hann verður á línunni hjá okkur.

Janúarráðstefna Festu fer fram þann 25.janúar næstkomandi í Hörpu undir yfirskriftinni, Við skrifum mannkynssöguna, sem vísar í þau tímamót sem við stöndum frammi fyrir í loftslagsmálum og þær breytingar sem eru eiga sér stað í starfsemi fyrirtækja þegar kemur sjálfbærni. Markmiðið er eiga samtal um þær áskoranir sem við mannkynið stöndum frammi fyrir í tengslum við áhrif loftslagsbreytinga og hvernig hægt er sporna við þeim með nýrri tækni og nýsköpun. Elva Rakel Jónsdóttir framkvæmdastjóri Festu kemur til okkar á eftir og segir okkur betur frá.

Við fáum til okkar hvítlauksbændur úr Kópavogi þau Þórunn Ólafsdóttur og Harald Guðjónsson en þau hafa sannað það það er hægt rækta hvítlauk hér á landi. Framleiðslan er lífræn og er í blússandi vexti. Við fáum heyra sögu þeirra hér í þættinum.

Hvað í ósköpunum er Djúptæknikjarni? Það eina sem vitum er það á hýsa fjölmörg svið vísinda lista og hönnunar ásamt nýsköpunar- og sprotafyrirtækum. við fáum heyra meira af þessu spennandi verkefni í þættinum og til okkar kemur maður sem heitir Hans Guttormur og segir okkur allt um það.

Mennta- og barna­málaráðuneytið hef­ur gert samn­ing við Íslenska ætt­leiðingu um þróun verklags um samþætta þjón­ustu við börn sem ætt­leidd eru til Íslands. Ásmundur Einar Daðason mennta og barnamálaráðherra og Elísabet Hrund Salvarsdóttir framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar undirrituðu samning þess efnis og á línunni hjá okkur er Elísabet Hrund.

Frumflutt

23. jan. 2024

Aðgengilegt til

22. jan. 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þættir

,