
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Óhætt er að segja að Stöðvafjörður hafi farið hrikalega illa út úr óveðrinu sem ekki er enn yfirstaðið fyrir austan. Tjónið er mikið og enn langt í land með að meta það þar sem aðstæður bjóða ekki upp á það. Fimm til sex slökkviliðsmenn bæjarins hafa staðið í ströngu við að sinna því sem upp kemur en ekki hefur tekist að senda aðstoð þar sem allir vegir eru lokaðir. Margeir Margeirsson varðstjóri slökkviliðsins á Stöðvafirði var á línunni.
Landsnet sendu frá sér tilkynningu fyrr í dag sem hljómar einfaldlega svona : Eldingahætta í dag Þetta er vegna kuldaskila seinni lægðarinnar sem gengur yfir landið og við fræddumst um þetta hjá Steinunni Þorsteinsdóttur uppslýsingafulltrúa Landsnets.
Grímur Atla kemur í heimsókn til að minna okkur á G-vítamínin. Átakið er hálfnað og ekki veitir af að rifja upp virkni G-vítamínana.
Hinn fjölhæfi Ævar Þór Benediktsson frumsýnir einleikinn Kafteinn Frábær eftir Alistair McDowall í Tjarnarbíó í næstu viku. Verkið er einleikur um föðurhlutverkið, karlmennsku, einmanaleika, sorg, missi og (auðvitað) ofurhetjur. Kafteinn frábær kom í heimsókn.
Rafleiðsla verður haldin að öðru sinni í vélarsal gömlu rafstöðvarinnar í Elliðaárstöð í Elliðaárdal um helgina. Rafleiðsla er hljóðbað sem gengur út á samtal í gegnum djúpa hlustun, stillta hugleiðslu og er dans á milli fyrirfram samdra tónsmíða og spuna. Benedikt Reynisson og Þórður Bjarki Arnarson meðlimir hljómsveitarinnar Osmé, sem spiluðu stanlaust í 12 klukkutíma á Stöðvafirði sögðu okkur nánar frá.
Sumir eru lofthræddir, flughræddir, hræddir við köngulær... Ég er svakalega hrædd við ROK. Þetta skrifaði fjölmiðlakonan og rithöfundurinn Sirrý Arnardóttir á vegginn sinn fyrr í dag. En er það virkilega svo að rokfóbía sé til ? við komumst að því í þættinum og heyrum í Sirrý,.
En við byrjum á Almannavörunum - samskiptastjórinn Hjördís Guðmundsdóttir er á línunni

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.