Síðdegisútvarpið

Minnumst Björgvins Halldórssonar, snjóflóðavarnir og Danska konan í Danmörku

Björgvin Halldórsson, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, er látinn, 74 ára aldri. Björgvin fæddist í Hafnarfirði 16. apríl 1951. Hann hóf ungur tónlistarferil sinn og varð fljótt einn vinsælasti og afkastamesti söngvari landsins. Ólafur Páll Gunnarsson, dagskrárgerðarmaður hér á Rás 2 tók saman stutt minningabrot um þennan risa í íslensku tónlistarlífi sem er fallinn frá.

Í gær var forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Sante hjá okkur bregðast við dómi Héraðsdóms um áfengissala netverslunar á víni sem sannanlega er ekki afhent erlendis frá heldur innanlands ólögleg. Ljóst er málinu verði áfrýjað. Árni Guðmundsson, formaður foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum,brást líka við dómnum.

Masters er fyrsta risamót ársins í golfi hjá körlunum og fór af stað í dag á Augusta National vellinum í Bandaríkjunum. En hver mun klæðasta græna jakkanum í lok móts? Þorsteinn Hallgrímsson, fyrrum norðurlandameistari og íslandsmeistari í golfi, spáði í spilin með okkur.

Snjóflóðavarnargarður ofan Patreksfjarðar kom í veg fyrir snjóflóð félli á hús neðan garðsins 26. mars síðastlíðinn. Snjóflóðið er það stærsta sem fallið hefur á þessum slóðum allt frá árinu 1958. Athygli vekur ekki var greint frá flóðinu fyrr en um tveimur dögum síðar. Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri í Vesturbyggð var á línunni hjá okkur.

Sjónvarpsþættirnir Danska konan voru frumsýndir í Danmörku í síðustu viku. Þættirnir hafa fengið virkilega góðar viðtökur og gagnrýnendur keppast við lofsama þá. Við heyrðum í Benedikt Erlingssyni handritshöfundi og leikstjóra þáttanna.

Landslið karla í íshokkí er statt á heimsmeistarakeppni IIHF í 2. deild B. Leikið er í Sofiu í Búlgaríu og hafa drengirnir sigrað alla sína leiki til þessa. Þeir spiluðu við Kyrgistan fyrr í dag og fór leikurinn 6-3 fyrir Íslandi. Við hringdum til Búlgaríu og heyrðum í Rúnari F. Rúnarssyni en hann er aðstoðarþjálfari liðsins.

Birt

9. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,