
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Við tókum viðtal við Atla Stein Guðmundsson blaðamann á mbl.is í gær vegna þess að hann lenti nýverið í því að umsögn sem hann skrifaði á Tripadvisor var hafnað og hún tekin út af síðunni sökum þess að talið var að umsögnin væri skrifuð með aðstoð gervigreindar. Við ræddum við Eirík Rögnvaldsson prófessor emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands um gervigreind og tungumálið.
Hópur íbúa Stöðvarfjarðar er afar óánægður með hve seint sveitarfélagið Fjarðabyggð varaði fólk við gerlamengun í drykkjarvatni þorpsins í síðustu viku. Við ræddum í gær við Evu Jörgensen nýdoktor í heilsumannfræði íbúa á Stöðvafirði en hún tjáði okkur að fjöldi íbúa hafi veikst vegna þess og hún spyr hvort ekki hægt að tryggja betra upplýsingaflæði til íbúa. Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri Fjarðabyggðar var á línunni hjá okkur.
Meistaraverkefni Kristínar Rósar Sigurðardóttur endaði sem grein í hinu virta læknariti Lancet. Niðurstöður rannsóknarinnar, sem fjallar um einhverf börn og börn með ADHD og, eru einstakar á heimsvísu vegna nákvæmni þeirra, og Kristín Rós sagði okkur nánar frá þeim.
Íslandsmótið í Golfi hófst í morgun á Hvaleyrarvelli Golfklúbbsins Keilis. Mótið sem sýnt verður frá beint hér á RÚV klárast á sunnudaginn og það er óhætt að segja að öllu verði til tjaldað þetta árið. Hulda Bjarnadóttir forseti GSÍ og Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Keilis komu til að segja okkur betur frá því.
Það verður mikið um dýrðir á Akureyri um helgina þegar N1 mót stúlkna í knattspyrnu fer fram í fyrsta sinn. Við hringdum norður í Sævar Pétursson framkvæmdastjóra KA og og spurðum hvort allt sé til reiðu og hvort spennan fyrir mótinu sé ekki farin að magnast.
Og við höldum áfram að heyra í landvörðum víða um land, en í þetta sinn slógum við á þráðinn til Sigurðar Erlingssonar yfirlandvarðar í Mývatnssveit.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.