ok

Síðdegisútvarpið

Jarðgöng, Torg í Reykjavík, alþjóðadagur útvarps, söngvakeppni og eignavakt.

Jens Garðar Helga­son, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, sagði frá því í jómfrúarræðu sinni á Alþingi í vikunni að hann ætli að leggja fram þingsályktunartillögu þar sem hann skorar á Alþingi Íslendinga og ráðherra samgöngumála að skoða alvarlega stofnun Jarðgangafélags Íslands, að fyrirmynd Færeyinga. Jens Garðar sagði okkur nánar frá þessari hugmynd.

Jón Jósep Snæbjörnsson, tónlistarmaður og viðskiptatengslastjóri Aurbjargar, kom til okkar og sagði frá frá eignavakt Aurbjargar sem er þjónusta sem finnur fasteignir sem þú hefur efni á, út frá þinni greiðslugetu og þínu eigið fé. Þá fengum við Jónsa til þess að koma með góð ráð fyrir keppendur Söngvakeppninnar en hann hefur margoft tekið þátt í Söngvakeppninni og hefur tvisvar sinnum tekið þátt fyrir hönd Íslands.

Tillaga er komin fram um strangara eftirlitskerfi hjá frjálsíþróttakonum en þær munu þurfa að ganga í gegnum sérstakt kynjapróf. Tillagan er unnin af vinnuhóp á vegum Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins. Prófið mun leita að SRY geninu sem finnst nánast eingöngu í karlmönnum. Búast má við mikill umræðu um prófið og við fengum íþróttafréttamanninn Almarr Ormarsson til að rýna í málið fyrir okkur.

Reykjavíkurborg leitar nú eftir áhugasömum einstaklingum eða hópum til að taka þátt í verkefninu Torg í biðstöðu 2025. Að þessu sinni er áherslan á lífið í skóginum í allri sinni dýrð. Rebekka Guðmundsdóttur, deildarstjóri borgarhönnunar mætti til okkar og sagði okkur betur frá.

Í dag er Alþjóðlegur dagur útvarps. Þau Fanney Birna Jónsdóttir dagskrástjóri Rásar 1 og okkar eigin Sigurður Þorri Gunnarsson ræddu við okkur um miðilinn, stöðuna á honum og framtíðina.

Frumflutt

13. feb. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,