
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Bangsafest er um helgina og við slógum á þráðinn til Sigurður Júlíusar sem var staddur um borð í rútu sem rúntar með bangsana, sem sækja hátíðina heim, á Gullfoss og Geysi.
Benedikt Rúnar Guðmundsson körfuboltasérfræðingur ræddi EM í körfu við okkur.
Helgi Áss Grétarson varaborgarfulltrúi sjálfstæðisflokksins segir ástand mjóddarinnar móðgun við þá sem nota þessa fjölförnustu skiptistöð borgarinnar. Salerni stöðvarinnar séu jafnan lokuð, takmörkuð eða engin þjónusta í boði fyrir farþega, og stöðin í niðurníðslu innan sem utan. Hann gagnrýnir í aðsendri grein í morgunblaðinu forgangsröðun borgarinnar, sem hafi varið fúlgum fjár í torg, en ekki viljað eyða broti af þeim fúlgum til að bæta ástandið í Mjódd. Helgi kom til okkar.
Föstudagsgestir þáttarins voru þrír að þessu sinni. Fyrst fengum við til okkar Friðrik Dór og Aron Can og í kjölfarið kíkti til okkar í kaffibolla leikkonan Birna Rún Eiríksdóttir sem er að fara af stað með uppistandið Bremsulaus í haust.
Nú er komin út blótsyrðabókin Eat frozen shit, sem er frasabók fyrir útlendinga sem vilja læra að blóta og hallmæla fólki á hinu ástkæra ylhýra. Við ræddum við höfund bókarinnar hana Brynju Hjálmsdóttur.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.