
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Fjölmenn mótmæli gegn meintum einræðistilburðum Bandaríkjaforseta voru haldin víða um landið á laugardag meðan umfangsmikil hersýning var haldin í höfuðborginni. Ein þeirra sem mótmæltu í New York var Sigríður Benediktsdóttir hagfræðingur sem kennir við Columbia háskóla, og hún kom til okkar að fara yfir ástandið vestanhafs.
Himininn hefur verið hvítur í veðurblíðunni undanfarið, þrátt fyrir að það ætti að heita heiðskýrt. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur útskýrði fyrir okkur hvað veldur.
Svo heyrðum við í Jóhanni Hlíðar á Spáni, sem sagði okkur frá grófri spillingu í pólitíkinni, hitabylgju og afar sérstöku morðmál á norður-Spáni.
Lyfja setti af stað svokallaða vöggugjöf á dögunum, þar sem foreldrar tilvonandi og núverandi geta fengið frían pakka með ýmsum nauðsynjavörum fyrir börn. Þetta var gert í samstarfi við Unu Emilsdóttir sérnámslækni í atvinnu- og umhverfislæknisfræði en hún sérhæfir sig í að draga úr notkun á óæskilegum efnum, sérstaklega þegar kemur að börnum.
Svo heyrðum við í Helga okkar Björns sem stígur á stokk ásamt karlakórnum Fóstbræðrum í tívolí á þjóðhátíðardaginn á morgun.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.