Síðdegisútvarpið

Málefni Rússlands og Þýskalands, Borgarlínan og ný endurvinnslustöð Sorpu

endurvinnslustöð SORPU við Lambhagaveg var opnuð í gær 1. september og markar tímamót í starfsemi fyrirtækisins. Þetta er fyrsta endurvinnslustöðin sem SORPA hefur fengið tækifæri til hanna og byggja frá grunni, með sérstaka áherslu á aukið öryggi, betra umferðarflæði og þægilegri þjónustu fyrir gesti. En hvað kostuðu herlegheitin og hvað mun breytast fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisinsGunnar Dofri Ólafsson er samskiptastjóri SORPU hann var á línunni.

Þýsk stjórnvöld sökuðu Rússa í gær um hafa flogið dróna með sprengiefni inn á hernaðarlega mikilvægan flugvöll í Leipzig í síðasta mánuði. Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafnaði ásökununum og sakaði Þjóðverja um koma fyrir sönnunargögnum. Stefan Thumann, forstjóri þýsks hergagnaframleiðanda, segir Þýskaland og Rússland í stríði, en leiðtogar Evrópusambandsins hafa ekki tekið jafn djúpt í árinni. Arnór Sigurjónsson varnarmálasérfræðingur kom til okkar.

Framkvæmdir eru hafnar við uppbyggingu innviða fyrir Borgarlínu við Nauthólsveg og Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu. Betri samgöngur standa verkinu í samstarfi við Reykjavíkurborg og Veitur og er gert ráð fyrir framkvæmdum ljúki sumarið 2028. Þrátt fyrir umfangsmiklar framkvæmdir verður opið fyrir umferð um svæðið allan framkvæmdatímann með hjáleiðum. Við ætlum í Þorsteini R. Hermannssyni, framkvæmdastjóra Betri samgangna.

Síðasta áramótaskaup hlaut frábærar viðtökur og hefur Allan Sigurðssyni og Hannesi Þór Arasyni verið treyst fyrir því verkefni annað árið í röð leikstýra því. Þeir komu til okkar og segja okkur frá ferlinu.

Við rákum augun í auglýsingu frá Skylmingafélagi Reykjavíkur -þar sem m.a. svohjóðandi kom fram " Við skorum á þig taka upp hanskann og setja á þig grímuna. En hvernig fer þessi íþrótt fram og hvað eru margir stunda hana á Íslandi sem allt veit um skylmingar heitir Andri Nikolaysson hann er einn af okkar fremstu skylmingarmönnum, auk þess þjálfa Skylmingarfólk framtíðarinnar. Hann kom í Síðdegisútvarpið í dag.

Félag áhugafólks um íslenska tónlist hefur hleypt af stokkunum vefsíðunni íslensktónlist.is. Markmiðið er skrá íslenska tónlist eins ítarlega og mögulegt er. Ekki bara flytjendur og plötur heldur einnig lagahöfunda, textahöfunda, útsetjara, upptökumenn, hljóðfæraleikara, ljósmyndara, útgefendur og alla þá sem hafa lagt sitt af mörkum. Maðurinn á bakvið verkefnið heitir Hilmar Kári Hallbjörnsson hann kom í þáttinn.

Birt

2. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,