Skóla- og frístundaráð borgarinnar hefur varið sumrinu í að undirbúa breytingar á skólaárinu, símabann, samræmt lokamat úr öllum grunnskólum, einkunnir í tölustöfum, svo fátt eitt sé nefnt. Í vikunni bárust svo fréttir af uppsögnum og miklum skipulagsbreytingum á skóla- og frístundasviði. Við ræddum þessar breytingar við Bjarna Fritzson, formann skóla- og frístundaráðs.
Á sjötta hundrað eru látin í Nepal eftir hrun jökultungu sem olli gríðarlegri flóðbylgju. Jökulvatn, grjót og leðja æddu niður hlíðar og gil, og hrifsuðu með sér mannvirki og fólk. Telja vísindamenn loftslagsbreytingar af mannavöldum hafa spilað stóran þátt í þessum náttúruhamförum. Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur var á línunni.

Bandarískar leyniþjónustur telja að Vladimír Pútín Rússlandsforseti sé að undirbúa einhvers konar árás á eitt eða fleiri bandalagsríki NATO - líklega eitt Eystrasaltsríkjanna. John Ratcliffe, forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, flaug til fundar við ráðamenn í Moskvu í vikunni og í morgun bárust fregni af því að Svíar væru að senda hersveitir til Finnlands, að landamærunum sem liggja við Rússland. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur var á línunni.
Norska þjóðin syrgir Harald Noregskonung sem féll frá snemma í morgun. Fjöldi hefur safnast saman fyrir utan konungshöllina og lagt blóm til að minnast hans. Valgeir Magnússon starfar í Ósló. Hann var á línunni og sagði okkur frá andrúmsloftinu í höfuðborginni.
Stærsta bæjarhátíð Rangæinga, Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli, er í fullum gangi núna. Kjötsúpuangan fyllir vitin á hverju götuhorni. Við hringdum austur og tókum púlsinn. Á línunni var Sigurmundur Páll Jónsson hjá Rangárþingi eystra.