Síðdegisútvarpið

Almyrkvi, Sólmyrkvi og Deildarmyrkvi mál málanna

Við byrjuðum á því heyra í Grétu Sigríði Einarsdóttur fréttamanni sem stödd var á Látrabjargi.

Við fórum þaðan yfir á Hellisand en þar er Sigurður Þorra Gunnarsson dagskrárgerðamaður búinn dvelja síðan í gær spjalla við gesti og gangandi og lýsa fyrir okkur hvað þarna er í gangi.

Sævar Helgi Bragason gaf sér tíma til kíkja á okkur í útsendinguna en Sævar hefur vart hugsað um annað sl. 3 ár eða svo og er stóri dagurinn runninn upp.

Á Seltjarnarnesi var mikið um dýrðir og við náðum tali af bæjarstjóranum Þór Sigurgeirssyni sem lýsti fyrir okkur í beinni útsendingu hvað fyrir sjónum bar.

Ólöf Rún Erlendsdóttir fréttamaður var stödd í Fljótunum ásamt fjölda fólks freista þess aðsjá til myrkvans.

Helga Magnea Birkisdóttir staðarhaldari á Stapanum Arnarstapa var á línunni og sagði okkur frá dagskránni á Arnastapa þar sem fólk kom saman á þessum merku tímamótum.

Birt

12. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,