
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Ný þáttaröð - Með okkar augum lítur dagsins ljós í ágúst hér á ruv og við tókum smá forskot því við laumuðum okkur niður í st. 12 þar sem upptökur voru í fullum gangi.
Guðmundur Björnsson aðjúnkt í ferðamálafræði við HÍ og faglegur umsjónarmaður leiðsögunáms hjá Endurmenntun HÍ skrifaði áhugaverða grein á Vísi í dag undir yfirskriftinni Ferðaleiðsögn í skjóli ábyrgðar – tími til kominn að endurhugsa nálgunina. Þar segir m.a að að það ríki undarleg þversögn í íslenskri ferðaþjónustu og á meðan almenningur, fræðasamfélagið og stór hluti atvinnugreinarinnar viðurkenni mikilvægi fagmennsku og sérþekkingar í leiðsögn ferðamanna þá virðist stjórnsýslan líta á það allt öðrum augum. Guðmundur kom til okkar í spjall
Fyrstu myndir sjónaukans Veru Rubin birtust í fyrrakvöld, en gríðarlegt magn gagna frá honum kann að veita svör um sögu alheimsins, níundu plánetuna og hulduefni. Sævar Helgi Bragason, Stjörnu Sævar, kom til okkar og sagði okkur allt um þetta.
Færsla Bergs Þorra Benjamínssonar á Facebook í fyrradag hefur vakið mikla athygli, en þar rýnir hann í teikningar á nýrri íbúð á Heklureitnum, og hefur sitt hvað við skipulag hennar að athuga og verð að athuga. Við heyrðum í Bergi.
Skákáhugi á Íslandi er gríðarlegur og þar eigum við heimsmet líkt og í mörgu öðru. Við fengum til okkar stórmeistarann Vigni Vatnar og spáðum í skákina og helstu ástæður fyrir því að hún nýtur svo mikilla vinsælda á Íslandi um þessar mundir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.