
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Elín Birna Bjarnfinnsdóttir plokkari frá Eyrarbakka er einn af öflugustu plokkurum landsins. Elín leggur í hann þrisvar til fjórum sinnum í viku með poka á öxlinni sem hún fyllir jafn óðum. Við hringdum í þennan ofurplokkara í þættinum í dag.
Magni Ásgeirsson og Valmar Valjots skutust landleiðina til Reykjavíkur eftir hádegið í dag frá Akureyri og byrja helgina á því að kíkja til okkar en þeir koma fram ásamt hljómsveitinni Killer Queen í Bæjarbíó í kvöld.
Hildur Hinriksdóttir hönnuður og handverkskona er búsett í Róm og hefur verið það sl. 14 ár og enn lengur á Ítalíu. Það er margt um manninn í Róm í dag og síðustu daga en tugir þúsunda syrgjenda eru saman komnir við Péturskirkjuna í Vatíkaninu til að votta páfa virðingu sína. Frans páfi lést í á annan í páskum, 88 ára að aldri. Við hringdum til Rómar
Hammondhátíð á Djúpavogi. Nú er í gangi Hammondhátíð á Djúpavogi en þar er markmiðið að heiðra og kynna Hammondorgelið. Fjöldi tónlistarmanna mætir á svæðið, allt frá heimamönnum til landsþekktra, til að leika listir sínar og er Hammondorgelið rauði þráðurinn í gegnum alla dagskrána. Við hringjum austur og heyrum í Ólafi Björnssyni framkvæmdastjóra hátíðarinnar.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.