Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Leiðtogafundur, eldislax, Storytel og brauðlausar endur

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Vladimir Pútín Rússlandsforseti mætast á leiðtogafundi í Anchorage í Alaska á morgun þar sem aðalumræðuefnið verður málefni Úkraínu, en Volodimir Selenskí Úkraínuforseti verður þó ekki viðstaddur. Ástrós Signýjardóttir fréttamaður fór yfir stöðuna með okkur.

Í gær kom í ljós að eldislax hefði veiðst í Haukadalsá í Dölum en veiðimaðurinn hafði ekki áttað sig á þessu sjálfur en sendi mynd og myndbönd á samfélagsmiðla hvar hann sést sleppa laxinum. Í kjölfarið fór Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur á svæðið og þá kom í ljós að fleiri eldislaxar hefðu komið sér fyrir í ánni og nú spyrja með sig hvað næst? Guðni Magnús Eiríksson sviðstjóri laxa og silungsveiðisviðs hjá Fiskistofu stýrir næstu skrefum og við heyrðum í honum.

Og við höldum áfram að taka stöðuna á landvörðum, og þetta sinn sláum við á þráðinn til Josephine Roloff sem er landvörður í Dreka við Öskju.

Samkeppniseftirlitið rannsakar nú Storytel á Íslandi og í Svíþjóð En rannsóknin beinist að því hvort Storytel teljist markaðsráðandi og hvort viðskiptaskilmálar fyrirtækisins gagnvart útgefendum og rithöfundum teljist ósanngjarnir. Margrét Tryggvadóttir formaður rithöfundasambandsins kom til okkar.

Ekki gefa öndunum brauð eru skilaboðin frá Reykja­vík­ur­borg þessa dagana. Ástæðan er þör­unga­blómi sem vart hef­ur orðið í vatni Tjarn­ar­inn­ar, þar sem sjá má óvenju­lega lit­sterka brák. Við heyrðum í Þórólfi Jónssyni deildarstjóra umhverfis og gæða.

Staðarmiðillinn Víkurfréttir er 45 ára í dag. Eigandinn Páll Ketilsson hefur verið viðloðandi hann frá upphafi og hann var á línunni

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,