Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Höfundur köku ársins Arnór Ingi Bergsson hjá Bakaranum á Ísafirði,
Ljósið - endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur er að standa fyrir fjáröflun í næstu viku en hún verður með glæsilegra móti þar sem Ljósið er 20 ára á þessu ári. Við fáum til okkar þær Sólveigu Kolbrúnu Pálsdóttur og Heiðu Eiríksdóttir sem eru í samskipta og markaðsteymi Ljóssins komu til okkar.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir hélt á dögunum boð á Bessastöðum þar sem hún bauð karlmönnum af ýmsum stærðum og gerðum til að taka þátt í umræðu um karlmennsku og kærleika og er þetta liður í átaki hennar sem ber heitið #riddararkærleikans. Við fengum til okkar einn af þátttakendunum Alexander Aron Guðjónsson og vonandi má hann segja okkur eitthvað um hvað þarna fór fram...