Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Kylfingurinn Rory McIlroy sigraði á Masters-mótinu í golfi í gærkvöldi. Hann er sjötti kylfingurinn í sögunni til að vinna öll fjögur risamótin og fyrsti Evrópubúinn. Við ræddum Rory og sigurinn við Loga Bergmann annan umsjónvarmann hlaðvarpsins Seinni 9.
Birgitta Haukdal er vinsælasti rithöfundur landsins ef litið er til útlána á bókasöfnum. Bækur hennar voru lánaðar út um 34 þúsund sinnum á síðasta ári. Við heyrðum í Birgittu.
A&B heita þættir sem eru sýndir á stöð 2 þessa dagana. Þættirnir fjalla um tvíburabræðurna Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni sem sett hafa sterkan svip á íslenskan fótbolta með ýmsum hætti. Gunnlaugur Jónsson maðurinn á bakvið þættina kom til okkar.
Við hringdum austur og forvitnumst um Hammond hátíðina á Djúpavogi. Greta Mjöll Samúelsdóttir var til viðtals.
Fermingarbörn gengu í fyrsta sinn í tvö ár inn kirkjugólfið í Grindavík í gær. Vegna jarðhræringa og eldsumbrota var ekki fermt þar í fyrra. Elínborg Gísladóttir sóknarprestur í Grindavík var á línunni hjá okkur.