Síðdegisútvarpið

Ráðherra svarar fyrir samgöngumál, íbúar ræða kosningar og hægvarp

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur brugðist við ákalli Vestmanneyinga um bættar samgöngur til og frá eyjunni með því framlengja samning um áætlunarflug og fjölga flugferðum næstu tvær vikur. En eru þessar aðgerðir nóg og hefði þurft bregðast fyrr við? Við ræddum við ráðherra og Tryggva Hjaltason, Vestmannaeying og framkvæmdastjóra Andvara.

Oddvitaumræðurnar halda áfram í kvöld, annars vegar mætast frambjóðendur á Seltjarnarnesi og hins vegar á Ísafirði. Í tilefni þess heyrðum við í íbúum sveitarfélaganna. Jóhann Örn Ólafsson mætti til okkar í stúdíóið sem fulltrúi Seltirninga en hann hefur búið í bænum í um þrjátíu ár. Þá kom til okkar Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, veitingastjóri á Logni, til segja okkur frá lífinu á Vestfjörðum.

er hægt fylgjast með því í beinni útsendingu þegar kísilverið í Helguvík í Reykjanesbæ er rifið. Þetta er svokallað hægvarp eins og þekkt er t.d. hjá norska ríkissjónvarpinu. Við hringdum í Hilmar Braga Bárðarson, fréttastjóra Víkurfrétta og spurðum út í rifrildið og hvað ætti koma í staðinn.

Hugverkastofan býður til örráðstefnu um íslenska nýsköpun í íþróttatækni á Iceland Innovation Week og í tilefni af Alþjóðahugverkadeginum, í Austubæ, á morgun í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og Össur. Þar munu frumkvöðlar, framkvæmdastjórar og forsvarsmenn spennandi íslenskra nýsköpunarfyrirtækja á sviði íþróttatækni flytja stutt erindi um fyrirtæki sín og hvernig þau nýta markvissa hugverkavernd til tryggja samkeppnisforskot. Til segja okkur meira komu til okkar Helgi Hjálmarsson, stofnandi og forstjóri ELVA Golf, og Eiríkur Sigurðsson samskiptastjóri Hugverkastofunnar.

Stórhátíð myndasögunnar er á laugardaginn en þá er Ókeypis myndasögudagurinn haldinn hátíðlegur. En hvaða dagur er þetta og hvað verður um vera? Einar Valur Másson segir okkur allt um það.

Birt

29. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,