Síðdegisútvarpið

Samgöngur til Vestmannaeyja, Hveragerði 80 ára og Jóhann Hlíðar frá Spáni

Samgöngur til Vestmannaeyja eru búnar vera í lamasessi um langa tíma og þolinmæði Vestmannaeyinga er á þrotum. Þórunn Pálsdóttir, íbúi í Eyjum hefur verið dugleg vekja athygli á ástandinu á Facebook - þar greinir hún frá því hún hafi sent innviðaráðherra og forsætisráðherra bréf án þess viðbrögð lengi. En fékk hún einhver svör. Þórunn var á línunni frá Eyjum.

Oddvitaumræðurnar halda áfram í kvöld og í þetta sinn eru það frambjóðendur í Garðabæ sem mætast. Við skelltum okkur í heimsókn á Garðatorg og ræddum við íbúa þar áður en við tókum hús á Helga Ingólfi Eysteinssyni, framkvæmdastjóra Iceland Travel, en hann hefur búið í Garðabæ í tuttugu ár.

Jóhann Hlíðar Harðarson fréttaritari okkar á Spáni verður á sínum stað en í dag segir hann okkur frá undirbúningi fyrir heimsókn Páfa til Spánar en það myndu seint teljast hlýjar móttökur sem munu mæta Páfa og svo ætlar Jóhann ræða nautaat sem er af mörgum talið algert dýraníð en það getur ýmislegt gerst þegar nautabani og naut hittast í hringnum.

Á morgun verða liðin 80 ár frá stofndegi sveitarfélagsins Hveragerðis og verður afmælisdagurinn haldinn hátíðlegur. Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar Björn Skúlason, fagna deginum með bæjarbúum. Pétur Markan, bæjarstjóri, kom til okkar.

Fjallaskóli Íslands er nýr framhaldsskóli í Öræfum sem býður upp á nám í ævintýra- og fjallaleiðsögn það eina sinnar tegundar á landinu. Skólinn starfar sem sjálfstæður einkaskóli með samþykkta námsbraut og fjármögnun frá ráðuneyti. Smári Stefánsson er skólastjóri Fjallaskóla Íslands, hann kom í Síðdegisútvarpið og sagði okkur nánar frá skólanum

Í síðustu viku var haldin, eins og á hverju ári, stærsta sjávarútvegssýning heims í Barcelona. Fjöldi íslenskra fyrirtækja sótti sýninguna til kynna sig og sjá aðra. Einn þeirra sem þarna var staddur er matreiðslumaðurinn, Snorri Birgir Snorrason. Hann hefur árum saman eldað mat á þessari sýningu fyrir sýningargesti og í ár stýrði hann keppni spænskra matreiðslumanna um hver eldaði besta fiskréttinn úr íslenskum þorski. Við fengum Snorra til okkar í lok þáttar.

Birt

28. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,