
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Anna Fjóla Gísladóttir ljósmyndari hefur einsett sér það markmið að taka ljósmyndir af öllum réttum á landinu. Hún er nú þegar búin að mynda 300 en á þá slatta eftir - hvað skyldu þær vera margar réttirnar á landinu við komumst að því á eftir.
Halldóra Geirharðs og Steinunn Ólína - Á ég að hend ´enni ? Hlaðvarp um bækur sem á einhvern hátt hafa haft áhrif á líf þeirra og nú er spurt hvort það eigi að losa sig við eintakið eða ekki. Halldóra hefur verið i sjálfsvinnu frá því að sýningum lauk á Bubba, Steinunn forsetaframboðið ofl.
Þann 21. júní, á lengsta degi ársins, breytist Laugardalur í útihátíð með öllu því sem tilheyrir á slíkri hátíð, mat og tónlist. Benedikt Freyr Jónsson er sá sem allt veit um Lóuna en svo nefnist þessi hátíð við hringjum í hann.
Söngleikjastælar er tónleikaröð sem hefur verið haldin í Salnum í Kópavogi undanfarið en þar fá þau Bjarni Snæbjörnsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir til sín góða gesti úr leikhúsinu og flytja þau saman þekkt lög úr hinum og þessum söngleikjum. Þau kíkja hjá okkur ásamt Karli Olgeirssyni og þau taka lagið í beinni

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.