
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Það er mikil hitabylgja í Evrópu þessa dagana og eru víða rauðar og appelsínugular viðvaranir vegna hita, sem hefur á sumum stöðum farið vel yfir 40 gráður. Við slógum á þráðinn til Steinunnar Fjólu Jónsdóttur fasteignasala á Alicante
Þingmenn eru enn að niðrá Alþingi - Hversu lengi getur þetta haldið svona áfram? Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðiprófessor kom og sagði okkur frá því.
Ísland leikur sinn fyrsta leik á EM í knattspyrnu á miðvikudag þegar þær mæta Finnum. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður er staddur með stelpunum okkar í Sviss þar sem mótið fer fram og við heyrðum í honum.
Farsældarráð Suðurnesja, hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, var formlega stofnað í síðustu viku. Ráðinu er ætlað að efla og samræma þjónustu við börn og fjölskyldur. Við ætlum að forvitnast betur um hvað ráðinu er ætlað að gera og fá til okkar Hjördísi Evu Þórðardóttur, verkefnastjóra farsældar barna á Suðurnesjum.
Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fóru til Tyrklands í maí í hárígræðslu. Þeir ætla að koma til okkar og fóru yfir ferðasöguna á hundavaði.
Sigurður Þ. Ragnarsson spáði í veðrið með okkur fyrir lok þáttar.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.