Síðdegisútvarpið

Vetrarhátíð, Áfall hvað svo og söfnun fyrir snjóframleiðslu á Dalvík

Hvernig togar síminn svona í okkur er heiti fræðsluerindis á Bókasafni Kópavogs en þar ræðir Anna Laufey Stefánsdóttir tölvunarfræðingur, app forritari, móðir og snjallsímafíkill um þær aðferðir sem tæknifyrirtækin nota til að halda athygli notanda í leikjum og samfélagsmiðlum og hvað það er sem gerir sum öpp meira ávanabindandi en önnur. Við heyrðum í Önnu Laufeyju

Við lásum um það í austfirska miðlinum Austurfrétt að námskeið fyrir lengra komin í Býflugnarækt væri á næstu grösum en fyrir ári voru fyrir austan haldin byrjunarnámskeið fyrir áhugasama um býflugnaræktun í fjarnámi en nú ætlar skipuleggjandi þess námskeiðs að bæta um betur með námskeiði bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Það er Sæunn Vigdís Sigvaldadóttir, sem staðið hefur í býflugnaræktun í mörg ár, sem stendur fyrir námskeiðunum og við heyrðum í henni.

Það er ekki lengur sjálfsagður veruleiki að búa við frið.  Óróleiki í alþjóðamálum og örar tækniframfarir hafa breytt stöðunni – líka hér heima.

Hvernig tryggjum við öryggi þeirra innviða sem við treystum á daglega? Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri Keystrike, kom til okkar.

Áfall hvað svo? Er titill bókar eftir Sigrúnu Sigurðardóttur, hjúkrunarfræðing og prófessor við Háskólann á Akureyri, en hún er einn helsti sérfræðingur landsins þegar kemur að áföllum, áhrifum og úrvinnslu þeirra. Í bókinni fjallar Sigrún um þetta viðkvæma málefni, áföll sem við lendum allflest í á lífsleiðinni og hvernig við megum læra betur og skilja okkur og fólkið í kringum okkur. Sigrún kom til okkar og sagði okkur frá tilurð bókarinnar.

Vetrarhátíð verður haldin núna um komandi helgi, dagana 5.–8. febrúar og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þessi hátíð ljóss og myrkurs samanstendur af Safnanótt, Sundlauganótt og ljósaslóð ásamt yfir 150 viðburðum þar sem fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni. Þær AðalheiðurSveinsdóttir og Björg Jónsdóttir sem báðar eru verkefnastjórar hjá Reykjavíkurborg komu til okkar.

Við heyrðum af áhugaverður verkefni hjá forstöðumönnum skíðasvæðisins á Dalvík en átakið gengur út á að leggja til einn sólahring í snjóframleiðslu sem kostar 250. 000 krónur dagurinn og það er fyrst og fremst verið að höfða til fyrirtækja.   Við heyrðum í Herði Finnbogasyni forstöðumanni skíðasvæðisins.

Birt

4. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Rúnar Róbertsson og Margrét Marteinsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,