Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Veiða og sleppa, öryggi í Reynisfjöru, gleðiganga og uppseld ást

Banaslysið í Reynisfjöru á dögunum þegar ung stúlka drukknaði situr enn í okkur mörgum og slysið hefur vakið upp mikla umræðu um hætturnar sem þarna skapast við ákveðnar aðstæður. Gunnar Helgason rithöfundur tjáði sig á FB fyrr í dag og segist ekki trúa öðru en að hægt verði að koma í veg fyrir slys í fjörunni. Við hringdum í Gunnar.

Jón Kristjánsson fiskifræðingur skrifaði pistil á dögunum á vefnum Flugufréttir en þar segist Jón ekki hissa á dræmri laxveiði í ám landsins og fyrir því séu margar ástæður. Ein þeirra sé aðferðin veiða og sleppa. Svo við vitnum beint í grein Jóns þá segir hann „Það sem verið er að gera núna er ekki aðeins ár­ang­urs­laust held­ur bein­lín­is skaðlegt fyr­ir þá sem vilja njóta þess að veiða og éta lax sem er hin mesta holl­ustu­vara en nær ómögu­legt að fá, svo mat­gæðing­ar verða að éta hinn ill­ræmda eld­islax,“ seg­ir Jón Kristjáns­son fiski­fræðing­ur. Jón ræddi þetta umdeilda mál við okkur.

Hápunktur Hinsegin daga verður á morgun þegar Gleðigangan fer frá Skólavörðuholti. Og einn af hápunktum þeirrar göngu er alla jafna vagn Páls Óskars, sem leggur ekki minni metnað hann þetta árið en áður. Við bjölluðum í Palla.

Kvikmyndin ástin sem eftir er er nánast uppseld í kjölfar frumsýningar hennar á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí. Framleiðendum myndarinnar hefur gengið vel að selja myndina til dreifingaraðila um víða veröld og nu er svo komið að myndin hefur verið seld á nánast alla markaði. Við fengum Anton Mána Svansson framleiðanda myndarinnar til okkar.

Miðar á 50 ára afmælistónleika Sumars á Sýrlandi í nóvember seldust upp á örskotsstundu og hefur aukatónleikum verið bætt við. Einvalalið tónlistarmanna leggja Stuðmönnum lið á tónleikunum, en auk þeirra tilkynnt komu sína sjálfir lykilhöfundarnir og upphaflegu flytjendur þessara sögufrægu laga — þeir Valgeir Guðjónsson, Egill Ólafsson og Sigurður Bjóla — en þessir þrír hafa ekki komið fram saman á Stuðmannasviði síðan 1976. Við ræddum við stuðmanninn Jakob Frímann Magnússon.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,