Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Hatur, hamingja og vandræði í veitingarekstri

Í kvöld hefja göngu sýna á Rúv nýir íslenskir heimildaþættir um uppgang hatursorðræðu á Íslandi og bakslagið sem orðið hefur í baráttu ýmissa minnihlutahópa á síðustu misserum. Leitast er við að svara spurningunni um hvernig bakslagið fór af stað hvaðan hatrið stafar og hvaða leið er útúr þessari stöðu. Ingileif Friðriksdóttir er umsjónarmaður þáttanna og hún er á línunni.

Steinþór Helgi Arnsteinsson vert í miðborg Reykjavíkur skrifaði færslu á feisbúkk í gær þar sem hann birti lista yfir 11 bestu veitingastaði í Reykjavík en listinn hafði birtst í Timeout fyrir um ári síðan. Í færslunni skrifaði Steinþór: “ Ég veit ekki hvort það sé meira sorglegt eða vandræðalegt að þrír af ellefu stöðum á þessum rétt svo ársgamla Best of lista hjá hinu virta Time Out séu farnir á hausinn.

Í öllu falli sýnir það hve rekstrarumhverfi veitingastaða og bara í Reykjavík er fáránlega erfitt.... “ Við ræðum stöðuna í veitingabransanum við Steinþór Helga á eftir.

Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík og fyrrum borgarstjóri verður á línunni en á fundi borgarstjórnar í dag leggur framsókn til að Reykjavíkurborg hefji vinnu við að verða barnvænt sveitarfélag samkvæmt alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities Initiative. Að auki hafa þau hug á að leggja fram tillögu er snýr að því að flýta samræmda námsferlinum í Reykjavík. Við hringjum niðrí Ráðhús og heyrum í Einari.

Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnafjarðar kemur til okkar og ræðir um hamingjuna en hamingjudagar í Hafnarfirði hófust í dag.

Líkamsræktarstöðin World Class fagnar 40 ára afmæli í dag, við hringjum í föður afmælisbarsins Björn Leifsson.

Undanfarin tvö ár hefur Óskar Þór Halldórsson unnið að ritun bókar um Akureyrarveikina. Hvað er Akureyrarveikin og hvað varð til þess að Óskar Þór ákvað að skrifa um hana. Hann verður í Síðdegisútvarpinu á eftir.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,