
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Í þættinum í gær fjölluðum við um gagnrýni á uppbyggingu skíðasvæða á höfuðborgarsvæðinu – milljarðar í framkvæmdir en brekkum fækkar, Skálafell hefur verið lokað i 3 ár og þrengsli aukast í Bláfjöllum. Við ræddum við Guðmund Guðjónsson formann skíðadeildar KR í gær – en nú fengum við að fá viðbrögðin frá sveitarfélögunum. Páll Björgvin Guðmundsson er framkvæmdastjóri samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og við ræddum um framtíðarskipulag skíðasvæðanna.
Stærsta kjaramálið er að endurskoða húsnæðislánakerfið segir félagsmálaráðherra sem óttast að verbólgan sprengi kjarasamninga í haust og fjármálaráðherra tekur undir. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir tvennt hægt að gera: Setja á leiguþak eða bremsu og setja skýr refsiákvæði í lög um launaþjófnað. Sólveig Anna kom til okkar.
Nú er spáð slæmu veðri í nótt og fram yfir hádegi á suð-vestur hluta landsins og gula og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi. Búast má við að færð spillist víða en viðbragðsáætlun vegna þessa hafi verið virkjuð í Reykjavík. Jón Þór Víglundsson hjá Landsbjörg kom til okkar og fór yfir viðbúnað björgunasveitanna og hvað almenningur þarf að hafa í huga og það gerði einnig Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur.
Á meðan Kúba gengur í gegnum verstu orkukreppu landsins í áratugi, eiga íbúar í erfiðleikum með að finna hreint vatn, mat, rafmagn og viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Ekkert eldsneyti hefur komið inn í landið í meira en tvo mánuði á meðan olíubann Trump-stjórnarinnar hefur staðið yfir. Stefán Ásgeir Guðmundsson sögukennari í MH og fararstjóri á Kúbu kom til okkar en hann þekkir vel til á Kúbu.
Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV leit við hjá okkur í lok þáttar en nú er verið að setja upp tæki hér í húsi til að ljúka yfirfærslu allra myndsegulbanda í safni RÚV en um15 þúsund spólur eiga eftir að fara í gegnum það ferli.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.