Síðdegisútvarpið

Sakfelling í sölu á hvítvínsbelju, 10 tenóarar og eldsneytisverð

Fyrr í dag var forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins sakfelldur fyrir hafa selt eina þriggja lítra belju af hvítvíni í lok maí í fyrra. Hann hlýtur 100 þúsund króna sekt fyrir brotið. Málið snýst í stuttu máli um það áfengið hefði verið keypt hér á landi en ekki erlendis og afhent af lager fyrirtækisins. Arnar Sigurðsson, hjá netáfengisverslunni Sante, mætti til okkar.

Um 25 þúsund einstaklingar sms-skilaboð frá Auðkenni í mars, apríl og maí því styttist í rafræn skilríki þeirra á SIM-korti renni út. SIM-kort eru símakortin snjallsímanum. Til fræða okkur um nýja kynslóð rafrænna skilríkja kom til okkar Haraldur Bjarnason, framkvæmdarstjóri Auðkennis.

Á morgun verða haldnir heiðurstónleikar í Langholtskirkju þar sem tíu tenórar koma saman á sviði. En þetta eru allt fyrrum nemendur Kristjáns Jóhannssonar og eru tónleikarnir honum til heiðurs. Allur ágóði af tónleikunum rennur til Minningarsjóðs Bryndísar Klöru og mun framlag tónleikana styðja við verkefnis sjóðsins í uppbyggingu Bryndísarhlíðar. Þau Birgir Karl Óskarsson, Gissur Páll Gissurarson og Jórunn Lára komu til okkar.

Runólfur Ólafsson, framkvæmdarstjóri FÍB, ræddi við okkur um eldsneytisverð á Íslandi og hversu fljótt við getum búist við lækkun í kjölfar vopnahlés. Þá ræddum við líka kílómetragjaldið sem vefst fyrir öllum, því er virðist, bæði almenningi og Skattinum sjálfum sem sér um innheimtuna.

Ólsen ólsen er eitt mest spilaða spil á Íslandi en hver er bestur í Ólsen ólsen? Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen fer fram 18.apríl næstkomandi. Tómas Steindórsson er mótshaldari og ætlar kíkja til okkar.

Þrátt fyrir appelsínugular og gular veðurviðvaranir er vor, og sumarið á næsta leyti. Það þarf því huga plöntunum og ekki seinna vænna klippa runna og tré. Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur fór yfir vorverkin með okkur.

Birt

8. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,