Síðdegisútvarpið

Er reiðufé að verða úrelt,Villi naglbýtur, Endurtekið og erlendar fréttir

Mikil eftirspurn er eftir ráðgjafa og upplýsingaþjónustu fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þess en úrræðinu var komið á í fyrra í tengslum við aðgerðaáætlunina Gott eldast.

Ásta Kristín Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi hóf störf þann 1. september í fyrra og síðan þá hafa nærri 500 manns leitað eftir upplýsingum og ráðgjöf. Ásta Kristín kom til okkar á og sagði frá.

Vilhelm Anton Jónsson listmálari, tónlistarmaður, sjónvarpsmaður og spurningahöfundur leit til okkar í Síðdegisútvarpið og sagði okkur frá ákvörðunina setjast aftur á skólabekk og yfirtöku sinni á Keiluhöllinni.

Það bárust af því fréttir ein verslun til viðbótar hefði ákveðið hætta taka á móti reiðufé og ástæðan væri of mikill tími og kostnaður fylgdi því taka við reiðufé. En hvert stefnum við í þessum efnum verður það þannig í framtíðinni okkur muni reynast ómögulegt borga með seðlum og mynt ? Því svaraði Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi.

Ingi Þór Ingibergsson dagskrárgerðarmaður hefur verið duglegur á Instagram setja inn alls kyns pælingar og tilraunir. Nýjasta tilraunin er fengin láni frá manni sem sat við hlið Inga á veitingastað á dögunum og hafði heyrt af fólki sem gerði tilraunir með sjóða bananahýði í vatni og drekka síðan. Þetta átti gera það verkum svefninn yrði dýpri og betri og ekki skemmdi það fyrir draumarnir urðu sterkari. Við hringdum Inga og fengum hann til þess segja okkur frá þessari óvenjulegu tilraun.

Er hægt byggja hús úr rusli? En hampsteypu eða hráefnum sem voru einu sinni í öðru húsi? Eru gömul húsgögn jafngóð og ný? Þessum spurningum verður svarað í Endurtekið í kvöld, umsjónamenn þáttanna, Freyr Eyjólfsson og Sigríður Halldórsdóttir mættu til okkar.

Oddur Þórðarsson fréttamaður kom til okkar með það nýjasta utan úr heimi.

Frumflutt

3. okt. 2024

Aðgengilegt til

3. okt. 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þættir

,