ok

Síðdegisútvarpið

Að vinna sig út úr kulnun, töfrar Jónsmessunnar, EM veisla og Dj Shadow á Íslandi.

Vala Eiríks stýrði Síðdegisútvarpinu í dag.

Pétur Guðjónsson er að vinna sig út úr kulnun. Hann var á línunni frá Akureyri, hvar hann býr.

Helga Margrét fór yfir það helsta frá EM, en þetta mót virðist ætla að gefa okkur mörg dramatísk mörk sem koma til með að lifa í minnum.

Símon Jón Jóhannson, þjóðfræðingur, fór yfir töfrana sem hafa verið tengdir Jónsmessunni.

Þar næst hringdum við á Eyrarbakka, hvar Jónsmessunni verður fagnað um helgina.

Við enduðum svo á því að fjalla um DJ Shadow, sem er loksins kominn til Íslands.

Frumflutt

20. júní 2024

Aðgengilegt til

20. júní 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,