Síðdegisútvarpið

Ár frá rýmingju Grindavíkur,skjáfíkn,Sveindís Jane og Bragi Páll með bók um saur

Á morgun verður efnt til málþings um skjáfíkn á vegum fræðslunefndar NLFÍ á Reykjavik Natura Berjaya Iceland Hotels. Þar verður velt upp spurningum eins og: Er skjáfíkn raunveruleg fíkn? Á banna snjallsíma í skólum? Hver eru úrræðin við skjáfíkn? Hver eru hættumerki of mikillar skjánotkunar? Og eru forvarnir í ólestri. Skúli Bragi Geirdal fjölmiðlafræðingur er einn þeirra sem heldur erindi á málþinginu og við fengum hann til okkar og ræddum við hann um skjáfíkn í breiðu samhengi.

þegar ár er liðið frá rýmingu Grindavíkur og við fengum til okkar Pál Val Björnsson Grindvíking sem var tíður gestur í Síðdegisútvarpinu á sínum tíma. Okkur lék forvitni á vita hvernig honum, hans fólki og öðrum Grindvíkingum hefur reitt af síðastliðið ár.

Bragi Páll rithöfundur fékk sér kaffibolla með okkur og við forvitnuðumst um nýju bókina hans: Næstsíðasta líf Jens Ólafssonar Olsen. Bragi Páll mætti til okkar strax loknum fimm fréttum. Og við hringdum til Þýskalands í Sveindísi Jane Jónsdóttur fótboltakonu og rithöfund sem var senda frá sér bókina Sveindís Jane, saga af stelpu í landsliði.

Ein þeirra frétta sem fór á flug um helgina var þess eðlis í ræktinni væru fleiri bakteríur en á klósettsetu. Þetta er vissulega skellur þrátt fyrir þjóðinn hafi marg oft heyrt Þórólf Guðnason sóttvarnarlæknir segja þjóðinni á sínum tíma í ræktinni væri allt vaðandi í bakteríum og hann var á línunni.

Frumflutt

11. nóv. 2024

Aðgengilegt til

11. nóv. 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þættir

,