Síðdegisútvarpið

Reyklaust Ísland 2027, Hulda í Graceland, gigt og meme vikunnar

Bilun varð í Nesjavallavirkjun í morgun. Orsök bilunarinnar er óljós en enn er unnið greiningu og viðgerð. Bilunin hefur áhrif á framleiðslu heits vatns og rafmagns. Gripið hefur verið til skerðinga á raforku hjá skerðanlegum notendum. Breki Logason er Samskiptastjóri Orkuveiturnar við heyrum í honum í þættinum.

Sóley Kristjáns varð 46 ára í lok ágúst, hún komst því fyrr á árinu það er samkvæmt hamingju-rannsóknum það ár sem fólk er óhamingjusamast á lífsleiðinni. Hún ákvað því gera það sem hana hefur alltaf dreymt um, gera uppistandssýningu fyrir framan fullan sal af fólki á afmælisdaginn sinn. Draumurinn rættist og seldist upp þannig er Sóley er mannauðsráðgjafi Reykjavíkurborgar fara af stað með aðra sýningu, hún kom til okkar.

Í nýrri tilkynningu frá Háskóla Íslands er því velt upp hvort Ísland geti á næstu tveimur árum orðið fyrsta þjóðin til reykingatíðni undir fimm prósentum sem mörg ríki og stofnanir hafa sett sér sem markmið og nota til skilgreina þjóð sem reyklausa, Í tilefni þessa er kominn út ríkulega myndkreyttur bæklingur á mannamáli með svörtum húmor, ætlaður þeim sem vilja hætta reykja. Tómas Guðbjartsson er einn höfunda og upphafsmaður átaksins og hann svararði því í þættinum.

Það er Meme miðvikudagur, þá stólum við á Atla Fannar sem mætti venju samkvæmt og uppfærði okkur um það sem stormar um miðlana, þá aðalega samfélagsmiðlana.

Í dag er alþjóðlegi gigtardagurinn Gigtarfélagið en snemmgreining og vitundarvakning um gigt er grundvallaratriði í farsælli meðferð fólks með gigt. Gigtarfélagið á Íslandi er taka nýtt húsnæði í notkun á laugardaginn en það mun gjörbylta allri þjónustu við fólk með gigt. En hvað er gigt, og hvaða úrræði eru í boði fyrir þá sem þjást af gigt ? Þær Hrönn Stefánsdóttir og Halldóra Ingvadóttir komu til okkar og ræddu við okkur um gigt og starfsemi félagsins á Íslandi.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er í Kaupmannahöfn ásamt eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni, og sendinefnd en þau eru í opinberri heimsókn, þá fyrstu í hennar embættistíð. Heimsóknin er einnig fyrsta sem Friðrik X Danakonungur fær síðan hann tók við embætti. Hallgrímur Indriðason fréttamaður er í Köben og við hringdum í hann.

Síðan hringdum við í okkar konu Huldu Geirsdóttur sem stödd er í Memphis Tennessee og það í sjálfu Graceland.

Frumflutt

9. okt. 2024

Aðgengilegt til

9. okt. 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þættir

,