ok

Síðdegisútvarpið

Hvalveiðar, Þráinn hjólakappi, EM í fótbolta og loftgæði í höfuðborginni

EM í knattspyrnu hefst á föstudaginn og RÚV sýnir beint frá keppninni. Í gær bárust þær fréttir að kvöldfréttir sjónvarps yrðu færðar vegna þessa en fréttatíminn verður ekki lengur á dagskrá klukkan 7 heldur hefst hann klukkan 9. Sitt sýnist hverjum um þessa breytingu og hingað til okkar á eftir kemur Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV og við spyrjum hann útí þessa ákvörðun.

​Fimm ís­lensk­ar kon­ur sem kalla sig Bár­urn­ar fóru til Sval­b­arða til þess að taka smá sund­sprett í Norður-Íshaf­inu við strönd bæj­ar­ins Longye­ar­byen. Þetta gerðu þær í til­efni þess að tvö ár eru liðin frá því að hóp­ur­inn synti yfir Ermar­sundið. Elsa Valsdóttir og Sigríður Lárusdóttir úr Bárunum koma til okkar á eftir og segja okkur ferðasöguna.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að leyfa hvalveiðar á yfirstandandi tímabili og er leyfilegt veiðimagn 128 langreyðar. Ráðherra segir að sér beri skylda til þess að gefa leyfið út, burtséð frá eigin skoðunum á málinu. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi telur leyfi matvælaráðherra aðeins veitt til málamynda og við ætlum að fá til okkar á eftir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur framkvæmdastjóra SFS.

Aldrei hef ég mætt jafnmörgu hjólreiða- og hlaupafólki og í gær á góðviðris sunnudegi. Sumarið er sannarlega komið. Fór eins langt og ég komst með sjónum í Mosfellsbæ. Hjólastígnum lauk við moldarbing við mörk Kjalarness að ég held. Mikil dægrastytting fyrir mig að hjóla, taka, velja og vinna myndirnar úr ferðunum. Þetta skrifar Þráinn Þorvaldsson í færslu sinni á FB um helgina en hann hefur verið duglegur að segja frá ferðalögum sínum um landið og nú síðast á rafmagnshjóli í kringum og í höfuðborginni. Þráinn er heldri borgari eins og sagt er og segir að það sé ekkert mál að byrja að hjóla aftur maður þurfi bara að byrja rólega. Þráinn kemur til okkar á eftir

Segja má að nú séu jólin á gróðrarstöðvum landsins, brjálað að gera og fólk keppist við að gróðursetja og lífga upp á umhverfi sitt með litríkum blómum. Hulda Geirsdóttir kíkti við í gróðrastöðinni Mörk í Reykjavík í dag og fékk sumarstemminguna beint í æð.

Mælt er með að börn séu inni í dag og íþróttaæfingar utan dyra verði felldar niður á höfuðborgarsvæðinu vegna mengunar frá eldgosinu við Sundhnúk. Þetta er ein mesta mengun sem mælst hefur frá því eldsumbrotin hófust á Reykjanesskaga og hingað er kominn Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun.

Frumflutt

11. júní 2024

Aðgengilegt til

11. júní 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,