Síðdegisútvarpið

Rúrik,Hannes,Kristjáns Jóhanns,Vigdís Hafliða og opið bréf til Kennarasambandsins

eru landsmenn hægt og rólega farnir huga jólaskreytingum. Margar seríurnar eru blessunarlag komnar upp á þokknokkur húsin í svartasta skammdeginu. En hvað með Kristján Jóhannsson? Er hann byrjaður skreyta? Hann kom til okkar og við spurðum hann meðal annars út í skreytingar á hans heimili og auðvitað allt annað.

Leikstjórinn, landsliðsmarkmaðurinn og viðfangsefni bókarinnar Hannes - Handritið mitt, Hannes Halldórsson kom og sagði okkur lauslega frá hvað stendur á þessum 400 bls í þessari nýútkomnu bók sem skrifuð er af Magnús Örn Helgason.

Jólaþorpið í Hafnarfirði opnar á eftir. Og hringdum í fjörðinn og tékkuðum á stemningunni og heyrðum í Sunnu Magnúsdóttur verkefnastjóra Jólaþorpsins og menningarmála í Hafnarfirði.

Á morgun á RÚV verður sýndur þátturinn Málæði í tilefni af degi íslenskrar tungu. Fyrr í vetur bauð barnamenningarverkefnið List fyrir alla, unglingum í grunnskólum landsins semja lög og texta í samstarfi við íslenskt listafólk. Afraksturinn verður opinberaður í þættinum en þær Vigdís Hafliðadóttir söngkona Flott og Harpa Rut Hilmarsdóttir verkefnastjóri Málæðis komu og sögðu okkur betur frá þessu.

Rúrik Gíslason mætti í lauflétt föstudagsspjall og leyfði okkur í leðinni heyra flúnkunýtt lag Iceguys sem hann syngur sjálfur, lagið heitir auðvitað Sexy Rú.

Í dag skrifaði Valgerður Bára Bárðardóttir opið bréf á vísi til for­ystu Kennara­sam­bands Ís­lands (KÍ). Hún sem móðir barns með fötlun, barn sem hefur verið heima hjá henni í ótímabundnu verkfalli leikskólans í 13 daga. Verkfallinu vissulega ætlað knýja fram breytingar á kjörum starfsfólks leikskóla, og hafi hún fullan skilning á þeim kröfum. En sama skapi vilji hún vekja athygli á þeim hrikalegu afleiðingum sem þessar aðgerðir hafa á viðkvæmasta hóp samfélagsins börn með sértækar þarfir og fjölskyldur þeirra og Valgerður Bára kom til okkar.

Frumflutt

15. nóv. 2024

Aðgengilegt til

15. nóv. 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Andri Freyr Viðarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,