• 00:02:34Fóstur- og nýburaskimanir
  • 00:24:41Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna
  • 00:45:32Málspjall með Önnu Sigríði Þráinsdóttur

Samfélagið

Rökrætt um fósturskimanir, nýjar krabbameinsrannsóknir og málspjall

Í dag standa tvö ráðuneyti, heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið fyrir málþingi um fóstur- og nýburaskimanir. Markmiðið er skapa þarna samtalsvettvang um þessi mál og hvaða hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframförum á þessu sviði. Þarna verða líka rædd ýmis siðferðileg álitamál sem tengjast fóstur og nýburaskimunum. Til ræða þetta fáum til okkar Rannveigu Traustadóttur prófessor og forstöðumann Rannsóknaseturs í fötlunarfræði hjá Háskóla Íslands og Henry Alexander Henryson, doktor í heimspeki við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.

Í dag er alþjóðlegur dagur krabbameinsrannsókna - og af því tilefni býður Krabbameinsfélagið til málþings þar sem fjallað verður um niðurstöður nýjustu rannsókna á þessu sviði, mikilvægi þeirra og framfarir sem orðið hafa á grunni rannsókna. Þórhildur Halldórsdóttir, lektor í klínískri sálfræði og erfðafræði við Háskóla Íslands, Heiðdís Björk Valdimarsdóttir, prófessor við sálfræðideild HR og Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, koma til okkar og fara yfir það helsta.

Og í lok þáttar fáum við til okkar Önnu Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins, í málspjall.

Frumflutt

24. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: [email protected]

Þættir

,